Við ætlum að láta bloggið hennar mömmu og Gumma nægja í bili...
Sjáum til hvort við höldum áfram með þetta blogg síðar..
Endilega skiljið eftir athugasemdir handa mér við myndirnar á mömmu bloggi
Bloggar | 18.8.2007 | 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í dag eru rétt rúmar tvær vikur þangað til við mamma og Gummi flytjum til Bandaríkjanna. Ég er orðin rosalega spenntur en ég er samt að skemmta mér konunglega í fríinu mínu áður en við förum. Ég hætti í leikskólanum í lok júní og var þá hjá ömmu og afa á Dalvík í rúma viku. Það var mjög gaman og ég fékk m.a. að hjálpa afa við að mála húsið! Svo fór ég í nokkra daga til ömmu og afa á Hrafnagili og fékk líka að mála þar og hjálpa til í garðinum. Enda er ég ótrúlega duglegur við að aðstoða og ber nafnið "vinnumaður" með réttu!
Núna er ég búinn að vera í viku hjá pabba þar sem við njótum þess að vera í sumarbústaðnum hans í sveitinni. Ég skrifa meira um það þegar ég kem aftur heim.
Bloggar | 16.7.2007 | 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svo er ég líka farinn að æfa mig í enskunni.. Yes (borið fram je, með slatta töffarahreim) og No heyrist oftast. Ég efast ekki um að restin af tungumálinu verði fljót að koma :-)
Ég er nú dálítið líkur henni mömmu, þar sem ég er ekki farinn að segja -R- ennþá en það er svosem ekkert til að hafa áhyggjur af. Samt ætla ég nú til talmeinafræðings til að ná því áður en ég flyt út þar sem ameríkanarnir nota errið svo lítið.. betra að hafa vaðið fyrir neðan sig.. Orðaforðinn hjá mér er samt alveg rosalega flottur! Stundum mætti halda að ég væri á 10. ári í stað 5. :-)
Bloggar | 2.5.2007 | 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þess vegna vildum við stofna þessa síðu til þess að ég geti sagt ykkur fréttir af mér og sett inn myndir.
Mamma er búin að lofa að vera duglegri við þessa síðu heldur en hún var við barnaland.is hér forðum daga..
Meira síðar ;-)
Bloggar | 26.4.2007 | 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar